Ég sé um nýlagnir, viðgerðir og töfluskipti fyrir heimili og fyrirtæki. Rétt frágengið í fyrsta skipti.
Almennar raflagnir, hússtjórnarkerfi og lýsing fyrir heimili og fyrirtæki, unnið eftir gildandi kröfum og teikningum.
Val, uppsetning og tenging hleðslustöðva fyrir rafbíla — fyrir einstaklinga, fjölbýli og fyrirtæki.
Töfluskipti, endurnýjun og stækkun rafmagnstaflna fyrir heimili, fjölbýlishús og fyrirtæki.
Uppsetning og viðhald netlagna og netkerfa fyrir heimili, skrifstofur og stofnanir.
Hönnun og uppsetning myndavélakerfa fyrir heimili og fyrirtæki, með áherslu á vandaðan frágang.
Hönnun, uppsetning og viðhald aðgangs- og öryggiskerfa fyrir fyrirtæki og fjölbýli.
Raftengt er rekið af Aroni Pétri Ragnarssyni, löggiltum rafvirkja og rafeindavirkja með meistarabréf í báðum greinum. Ég geng ekki frá verki fyrr en það er rétt gert.
Ég hef starfað við öryggiskerfi í yfir 10 ár, og verkin mín ná frá litlum viðgerðum upp í heildarlagnir fyrir fjölbýlishús og fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu.